Fara í efni
 

20% afsláttur af öllum Curaprox Prime millitannaburstum í desember

19.12.2022
Tilkynningar
CURAPROX stendur fyrir þekkingu og miðlun færni til að tryggja fullkomna munnhirðu og munnheilsu. Frá árinu 1972. CURAPROX kennir meira en einungis mikilvægi hvítra tanna og fersks andardráttar. Munnheilsa er grundvallaratriði þegar kemur að heilbrigðum líffærum og hraustum líkama.

Það er ástæða þess að CURAPROX þróar hvatningar- og þjálfunarnámskeið fyrir sérfræðinga. Á hverju ári þjálfar fyirrtækið og vottar þúsundir iTOP/CURAPROX munnhirðuleiðbeinenda víðs vegar um heiminn. Þeir hjálpa fólki að finna hvatningu og öðlast nauðsynlega færni til að halda munni sínum, tönnum og tannholdi í fyrirmyndarástandi. Þetta snýst allt um að hugsa til langtíma.

Aðferðir CURAPROX virka því fólk finnur muninn. Með CURAPROX er skemmtilegt að tannbursta sig því það er svo auðvelt og jákvæðar niðurstöður sjást greinilega.

Í því samhengi mætti segja að vörurnar séu „einungis“ leið að markmiðinu. Þær hjálpa til við að viðhalda hvatningunni fyrir góðri hreinsun. Það er þess vegna sem sérfræðingar CURAPROX vinna baki brotnu að því að gera vörurnar þær eftirsóttustu og bestu í heiminum – og gera þannig yfir milljón manns að CURAPROX-aðdáendum á ári hverju.

Þau eru ekki kölluð „svissneska tannþráhyggjufólkið“ að ástæðulausu.

Endilega kynntu þér fræðslustarf CURAPROX hér (https://curadenacademy.com/en/)

Í desember bjóðum við 20% afslátt af öllum Curaprox Prime millitannaburstunum. Endilega kynnið ykkur vöruúrvalið með því að smella hér.


Millitannaburstar frá CURAPROX
Til þess að hreinsa vel og vandlega milli tannanna þarf að notast við rétta millitannbursta sem hreinsa allt svæðið.

Auðvelt: Inn. Út. Búið

Þéttir, áhrifaríkir og þægilegir: CURAPROX millitannaburstar hreinsa allt mikilvæga millitannasvæðið vel og án óþæginda: tannholdslínuna, ávalar brúnirnar og snertifleti tannanna. Hægt er að eiga við allra smæstu millitannsvæði án hættu á áverkum þökk sé CURAL®, sem er næfurþunnur og þrælsterkur skurðlækningaþráður sem gerir það að verkum að ein hreyfing dugar: einu sinni inn og út. Búið.
Fæst í 5 stærðum

CPS Prime eru litlir millitannburstar sem fáanlegir eru í fimm stærðum. Best er að tannlæknirinn ráðleggi um rétta stærð fyrir sjúklinga sína.

Þetta eru fínustu litlu burstarnir á markaðnum – til að koma í veg fyrir skemmdir í hliðartönnum, tannholdsbólgu og tannvegsbólgu á sérlega auðveldan og áhrifaríkan hátt. Gæði CPS millitannaburstanna eru slík að ein stroka dugar til hreinsunar: einu sinni inn og út. Búið.

CPS hefðbundnir millitannburstar eru heppilegastir sem aukavörn á opnum millitannsvæðum: fyrir fyllingar, krónur, brýr og þráláta tannsýkla.
Þéttleiki - það ræður úrslitum
Mælingar eru mikilvægar og grunnurinn að árangri: Millitannbursti mun aðeins ná að hreinsa íhvolft yfirborðið, grópina milli tannanna og vandræðasvæðið neðan við snertiflötinn allt á sama tíma ef hann fyllir rétt út í millitannsvæðið.

Við þökkum kærlega fyrir komuna í básinn okkar á Tannlæknaþinginu.