Fara í efni
 

ClearPanels skilrúm

07.04.2021
Tilkynningar

Silentia hefur nú sett á markað nýja og spennandi vöru eða ClearPanels skilrúm.

En af hverju þessi nýja vara?

Jú.... Covid-19 kallar eftir því að halda fjarlægð, sem við gerum öll okkar besta til að fara eftir.

En hvernig getur hjúkrunarfræðingur haldið fjarlægð þegar hún þarf í raun að vera líkamlega nálægt sjúklingnum meðan á meðferðum, prófunum eða rannsóknum stendur?

Hvernig getur læknir tryggt örugg samskipti í gegnum grímur og andlitshlíf þegar hann talar við sjúklinga um meðferð þeirra og áhyggjur þeirra af heilsu sinni?

Samskipti heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga eru mikilvæg til að sjúklingum líði vel. Í heimi félagslegrar fjarlægðar verðum við að hjálpa heilbrigðisstarfsfólki að geta verið í nánu sambandi.

En hvernig?

Svarið er ClearPanels ™ frá Silentia

Silentia hleypir nú af stokkunum ClearPanels - nýtt gegnsætt skilrúm sem gerir starfsfólki og sjúklingum kleift að vera í nánu sambandi en halda samt æskilegri fjarlægð. ClearPanels er tilvalið að setja á milli starfsfólks og sjúklings meðal annars á meðan á rannsóknum stendur, prófunum og við margar aðrar nánar samskiptaaðstæður.
Silentia Clearpanels er einnig tilvalið fyrir verslanir og skrifstofur.

ClearPanels eru fullkomlega gegnsætt, hreifanlegt skilrúm sem gerir notenda auðvelt fyrir að fylgjast með og eiga samskipti við sjúklinga og/eða viðskiptavini.

  • ClearPanels uppfylla strangar hreinlætiskröfur heilbrigðisgeirans með sléttum og aðgengilegum flötum sem þola sótthreinsiefni sem notuð eru í hvaða heilsugæslu sem er.
  • Skilrúm sem auðvelt er að þrífa, færa og geyma þegar það er ekki í notkun.

Upplýsingar um vörur

  • Efni: Tært pólýkarbónat t = 4mm
  • Afhent með hlífðarfilmu sem viðskiptavinurinn dregur af eftir afhendingu
  • Þrif: Þolir sótthreinsiefni á sjúkrahúsum. Ekki nota hreinsiefni með slípiefni (silicon eða öðru hreisiefni sem slípar) og notaðu alltaf nýja hreinsiklúta. – Mælt með Wetwipes hreinsiklútum.
  • Mál: Hæðir: 1,55 m. eða 1,85 m. Lengd: 1,5 m.

Þú getur fengið frekari upplýsingar og sérpantað Silentia ClearPanels ™ hjá Icepharma með því að senda tölvupóst á stefaniaf@icepharma.is