Fara í efni
 

Fræðslumyndbönd um sárameðferð í boði Smith&Nephew

03.05.2021
Tilkynningar

Smith&Nephew stofnaði nýlega “Wound Club Online” sem er eins konar rafrænt samfélag þar sem ýmsum fróðleik um sárameðferð er deilt vikulega.

Um er að ræða youtube rás þar sem myndböndum um afmarkað efni er hlaðið inn en sú umfjöllun og kennsla er í höndum sérfræðinga í sárameðferð.Hugmyndin er að auðvelda aðgengi þeirra sem sinna sárameðferð að fróðleik og tækifærum til að rifa upp og bæta við sig þekkingu. Dæmi um umfjöllunarefni eru meðal annars T.I.M.E., þrýstingssár, óhefðbundin sár og langvinn sár.

Þjálfunin er gjaldfrjáls og aðgengileg á YouTube rás Smith&Nephew hvenær sem er  Smith & Nephew - YouTube

Nánari upplýsingar um vörurnar má finna hér: https://vorutorg.icepharma.is/is/vorumerkin-okkar/smith-nephew

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við
Jana Katrín Knútsdóttir
jana@icepharma.is
sími 520 4324