Fara í efni
 

Mikilvægi góðrar næringar

26.08.2020
Tilkynningar
Mikilvægi góðrar næringar

Mikilvægi góðrar næringar hefur líklega aldrei átt jafn vel við og nú en gott næringarástand er einn af grundvallarþáttum líkamlegrar heilsu. Í veikindum er sérstaklega mikilvægt að nærast. Gott næringarástand hjálpar til við að viðhalda líkamsstyrk og orku en þættir eins og ógleði, þreyta, verkir og kvíði geta haft þær afleiðingar að matarlyst og löngun til að borða minnkar. Við þessar aðstæður geta næringardrykkir verið góður kostur.

Næringardrykkir innihalda mikið magn af orku og próteinum ásamt því að innihalda lífsnauðsynleg næringarefni eins og vítamín og steinefni.

Út frá þörfum hvers og eins er hægt að velja á milli tveggja megin gerða af næringardrykkjum: Annars vegar eru það næringardrykkir sem teljast fullgild næring því þeir innihalda öll þau næringarefni sem líkaminn þarfnast. Þá er hægt að nota sem einu næringuna eða sem viðbót við almennt fæði. Dæmi um fullgilda næringardrykki eru Nutridrink Compact og Nutridrink 2.0 kcal. Hinsvegar eru það svo drykkir sem ætlaðir eru sem viðbót við almennt mataræði. Dæmi um næringardrykk sem er hugsaður sem viðbót er Nutridrink Prótein.

Bragð og magn eru þeir þættir sem hafa hvað mesta þýðingu fyrir löngun einstaklinga til þess að nærast. Þess vegna hefur Nutricia lagt sérstaka áherslu á að næringardrykkir innihaldi sem mesta orku og prótein í hverjum sopa, að drykkirnir séu bragðgóðir og að fjölbreytt úrval bragðtegunda sé í boði.

Nutridrink Compact næringardrykkirnir eru afar orkuþéttir næringardrykkir. Þeir innihalda minna magn (125ml) en um leið jafnmikla orku og hefðbundinn næringardrykkur. Þess vegna hentar hann vel ef matarlyst er lítil og eykur líkur á að einstaklingur geti klárað allan drykkinn sem er mikilvægur hluti af næringarmeðferð. Hann er einnig hægt að fá próteinbættan.

Nutridink Compact Prótein er góður kostur fyrir þá sem glíma við erfið veikindi þar sem próteinþörf eykst umtalsvert við þær aðstæður. Það sama á við þegar sár eru að gróa eða ef orkuinntaka er lítil. Nutridrink Compact næringardrykkirnir eru nú fáanlegir með mismunandi bragðtegundum í einum pakka sem eykur fjölbreytni og einfaldar valið á þínum uppáhalds drykkjum.

Nutridrink 2.0kcal er nýr næringardrykkur á markaði. Hann er 200ml næringardrykkur sem inniheldur fleiri hitaeiningar en hefðbundinn drykkur af sömu stærð. Drykkurinn inniheldur aukið magn af D-vítamíni, eða 10µg. Ráðlagður dagsskammtur af D-vítamíni fyrir eldra fólk er 20µg og er þörfinni því mætt með aðeins tveimur drykkjum. Þessir næringardrykkir henta vel fyrir einstaklinga sem eru með aukna orkuþörf.

Aðrar vörur sem einnig geta verið góður kostur þegar einstaklingar þurfa á einhverskonar orku og próteinbætingu að halda eru Nutrison næringarduft og Calogen.

Nutrison næringarduft, er bragðlaust næringarduft sem má blanda út í matvæli eins og súpur, sósur, grauta og drykki til orku- og próteinbætingar. Nutrison næringarduft telst vera fullgild næring og getur því verið góð viðbót við almennt fæði eða notuð ein og sér.

Calogen er orkurík jurtaolía sem gefur mikla orku í litlu magni. Calogen er notað sem viðbótarorka þegar erfitt reynist að uppfylla orkuþörf einungis frá mat. Calogen má blanda við mat og drykk og er því hægt að orkubæta máltíðir á einfaldan en áhrifaríkan hátt. Einnig er hægt að taka það sem staup og þá er magnið mjög lítið sem þarf að innbyrgða hverju sinni.

Nutridrink næringardrykkir ásamt öðrum næringarvörum frá Nutricia fást í flestum apótekum. Að ákveðnum skilyrðum uppfylltum geta einstaklingar sótt um niðurgreiðslu á næringardrykkjum frá Sjúkratryggingum Íslands, sem gert er í samráði við lækni eða næringarfræðing.

Vöruúrval Nutricia er breitt og er hægt að sérsníða næringarmeðferð fyrir hvern og einn. Gott er að leita eftir ráðgjöf ef þess þarf en einnig er hægt að finna frekari upplýsingar á heimasíðunni www.naeringogheilsa.is

Hugum að fólkinu í kringum okkur sem er lystarlaust og/eða á erfitt með að borða og veitum þeim aðstoð við að velja næringu sem uppfyllir næringarþörf líkamans.