Nýjar og spennandi vörur frá Clearblue
Nýjungar frá Clearblue eru mættar og á leiðinni til landsins. Clearblue hefur hafið framleiðslu á sérstöku sleipiefni sem ætlað er fyrir pör sem eru að reyna að verða barnshafandi. Sala á sleipiefninu er hafin og er varan fáanleg á Vörutorgi Icepharma og í gegnum pantanir hjá Parlogis. Einnig kemur í sölu í lok árs 2021 ný þungunarpróf sem greina þungun allt að 6 dögum áður en blæðingar eiga að hefjast. Niðurstöður birtast í stafrænum glugga líkt og á vikutalningarprófunum sem margir þekkja.
Clearblue Ultra Early stafrænt þungunarpróf 1stk eða 2 stk í pakka.
- Auðvelt í notkun.
- Breiður endi á öðrum enda prófsins sem dregur þvag auðveldlega í sig og ljós á hinum endanum sem kveiknar þegar nægt þvag hefur safnast fyrir.
- Stafrænn skjár sem telur niður í að niðurstöður birtist.
- Niðurstöðurnar eru stafrænar og skýrar, enginn efi og engar óljósar línur.
- Snemmgreiningin gerir einstaklingum kleift að framkvæma þungunarprófið allt að 6 dögum áður en blæðingar ættu að hefjast (5 dögum ef blæðingardagur er talinn dagur 1).
Clearblue frjósemisvænt sleipiefni
- Sérhönnuð formúla sem er gerð með það í huga að hjálpa sæðinu á réttan stað.
- Dregur hvorki úr hraða né fjölda sæðisfruma (samkvæmt in vitro rannsóknum).
- Bætir náttúrulegan raka með því að viðhalda PH jafnvægi og er því mjög sæðisvænt.
- Auðvelt í notkun en túpurnar eru hannaðar þannig að auðvelt er að koma efninu á réttan stað.
- 7 túpur sem innihalda 4 ml af sleipiefni.
- Hannað fyrir pör sem eru að reyna að verða barnshafandi.
Vara |
Vörunúmer |
Clearblue Ultra Early digital þungunarpróf, 1 stk |
471790601 |
Clearblue Ultra Early digital þungunarpróf, 2 stk |
471790602 |
Clearblue frjósemisvænt sleipiefni |
471790603 |
Sjá link á allt vöruframboð Clearblue á Íslandi: https://vorutorg.icepharma.is/is/heilbrigdisvorur/thungunarogegglosprof