NÝTT - niðurbrjótanlegir hanskar
Hvernig virkar þetta ?
Lífrænt niðurbrot á sér stað í tveimur þrepum. Í fyrsta þrepi veðrast yfirborð hanskanna þar sem ysta lag þeirra brotnar niður. Í öðru þrepinu seyta örverur ensímum sem brjóta efni hanskanna niður. Lokaafurðin sem myndast er næringarrík og óleysanleg í vatni sem hópur örvera getur nýtt sér.
Hversu hratt brotna PROSENSO™ BIODEGRADABLE hanskarnir niður ?
Í ákjósanlegu umhverfi brotna PROSENSO™ hanskarnir niður á innan við þremur og hálfu ári. Til samanburðar tekur sambærilega nítril hanska allt að 100 ár að brotna niður.
Undir hvaða kringumstæðum eiga PROSENSO™ BIO hanskarnir að vera notaðir ?
Í þeim tilvikum sem hefðbundnir ósterílir nítril hanskar eru notaðir er hægt að nota PROSENSO™ niðurbrjótanlegu hanskana. Hanskarnir eru vottaðir fyrir klínískt umhverfi (e.medical use) samkvæmt EN455 staðli og öryggir í notkun með matvælum.
Fáanlegar stærðir: XS, S, M, L, XL
Hanskarnir eru skurðstofu-grænir / pastel grænir og koma 100stk í kassa
Hægt er að panta hanskana hér
Tengiliður: Heiðrún Ingólfsdóttir, heidrun@icepharma.is