Fara í efni
 

Repose vörur til varnar þrýstingssárum – 100% niðurgreitt af SÍ*

02.02.2022
Tilkynningar
Icepharma hefur nýlega hafið sölu á þrýstingsléttandi vörum frá Repose. Vörurnar eru hannaðar til að koma í veg fyrir myndun þrýstingssára en einnig til að stuðla að gróanda hjá þeim einstaklingum sem eru með slík sár.

Ákveðin svæði líkamans eru útsettari fyrir þrýstingssárum en önnur. Virkni Repose byggist á því að dreifa þrýstingi jafnt á þann hluta líkamans sem varan er notuð á.

Vöruúrvalið samanstendur m.a. af yfirdýnum, fótahlífum og mismunandi tegundum af sessum sem henta til notkunar bæði á sjúkrastofnunum og í heimahúsum. Vörurnar eru gerðar úr teygjanlegu plastefni og kemur áferðin á því í veg fyrir tog og núning. Andar vel til að koma í veg fyrir svitamyndun.

Yfirdýna:

  • Stærðir: 178 cm x 77 cm eða 178 cm x 140 cm.
  • Hámarksþyngd:139 kg. 222 kg í sérstökum sjúkrarúmum.

Sessa:

  • Þrjár gerðir í boði en einfalda sessan er mest tekin.
  • Stærð einfaldrar sessu: lengd 45cm x breidd 45cm, þykkt 7,5cm.
  • Hámarksþyngd: 139 kg.

Fótahlíf:

  • Sérstaklega hönnuð til að létta á þrýstingi af hælum.
  • Gegnsætt plast sem auðveldar eftirlit með sárum.
  • Fest með seglum, sem gerir það að verkum að standard stærð hentar flestum.
  • Hægt að kaupa 1 stk eða 2 stk saman.

Brú/Wedge:

  • Hentar sérstaklega einstaklingum sem eru illa áttaðir og geta því ekki notað fótahlífarnar.
  • Einnig hægt að nota undir bak eða á milli hnjáa.

 

Repose býður upp á gæðavörur sem eru einfaldar í notkun og á góðu verði en jafnframt hefur verið sýnt fram á virkni varanna með fjölda klínískra rannsókna1. Vörunum er pakkað í pumpu sem notuð er til að fylla þær af lofti og eru þær því tilbúnar til notkunar á mjög skömmum tíma.

Repose vörurnar hafa verið notaðar erlendis til fjölda ára við góðar undirtektir og eru nú loksins fáanlegar á Íslandi.

*Repose er 100% niðurgreitt af Sjúkratryggingum Íslands fyrir þá einstaklinga sem eiga rétt á.

Vara

ISO númer hjá SÍ

Vörunúmer

Yfirdýna

181218

4516101100

Sessa -einföld

43303

4516201100

Sessa - tvöföld (Care-Sit)

43303

4516351001

Fótahlíf 2 stk

90621

4516501100

Fótahlíf 1 stk

90621

4516511101

Brú/wedge

43306

4516711100

 

Hægt er að skoða Repose vörurnar á vörutorgi Icepharma www.vorutorg.icepharma.is.

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Sigríði Huldu Árnadóttur (sigridurh@icepharma.is), tengilið Repose á Íslandi.

    1. Holloway, S. (2015). A review of evidence for use of the Repose product range. Wounds UK Journal, 11(4), 1-7. A-review-of-evidence-for-use-of-Repose.pdf (reposedirect.com)