Fara í efni
 

Sólarvarnir sem Jenna Huld húðlæknir mælir með

01.06.2021
Tilkynningar

Að eiga góða stund úti við með vinum og fjölskyldu, á sólríkum sumardegi, er einfaldlega ómetanlegt. Það er alla jafna eitthvað sem við Íslendingar þráum einna heitast eftir langa og þunga vetur.

Þegar sólin skín hátt á lofti yfir sumartímann hér á landi má gjarnan sjá fólk flykkjast út á götur, torg og garða, með það fyrir augum að sleikja sólina og eiga notalega stund í góðviðrinu.

Sólin og húðkrabbamein

Blessuð sólin er þó ekki alveg hættulaus en samkvæmt Jennu Huld, húðlækni, hafa rannsóknir sýnt fram á ótvíræð tengsl á milli sólarnotkunar og húðkrabbameina. Með öðrum orðum, því meiri sólarnotkun því meiri áhætta á húðkrabbameini seinna á lífsleiðinni.

Það er því mikilvægt að fara með aðgát þegar við reynum hvað við getum að fá sem mest út úr sólríkum sumardögum. Þá kemur góð sólarvörn/húðvörn svo sannarlega að góðum notum.

Jenna fær margar spurningar um mikilvægi sólarvarna frá skjólstæðinum sínum en hér að neðan svarar hún nokkrum þeirra.

Ef ég smyr á mig sólarvörn get ég þá verið í sólinni allan daginn?

„Það er rangt. Sólarvarnir eru góðar en þær eru alls ekki fullkomnar. Það á að nota þær sem viðbót við sólhlífar, klæðnað, sólhatt eða derhúfu. Margir trúa því að það sé óhætt að liggja í sólinni ef þeir bera á sig reglulega sólarvörn. Það er alls ekki rétt og mikilvægt að gæta hófs í sólinni eins og í svo mörgu öðru. Reynið að forðast sólina yfir miðjan daginn þegar hún er sem sterkust og verið í skugga. Mikilvægt er að smyrja sólarvörn á svæði sem þú getur ekki dulið með klæðnaði, eins og andlit og handarbök.“

Því hærri SPF þáttur, því betri sólarvörn?

„Rétt að vissu leyti. Það er ekki svo mikill munur á SPF 30 og 50 sólarvörn ef hún er borin á í þykku lagi. Þá verndar sólarvörn með SPF 30 um 96-97% gegn geislum sólarinnar á meðan sólarvörn með SPF 50 verndar um 98%. Rannsóknir hafa aftur á móti sýnt að það er bara um fjórðungur sem notar þykkt lag eins og á að gera og að flestir smyrja alltof þunnt á sig. Þá er stór munur á því að bera á sig sólarvörn með SPF 30 eða SPF 50, þar sem 50 verndar mun betur. Ég mæli alltaf með notkun á sólarvörn með SPF 50 eða hærri, aldrei lægri en SPF 30.“

Það er nóg að nota meik eða farða í andlitið sem sólarvörn.

„Rangt. Þó að farði innihaldi yfirleitt einhverja sólarvörn þá er hún yfirleitt ekki nægjanleg. Mjög algengt er að farðinn sé ekki notaður í því magni sem þarf til að vernda gegn sólinni eða þá ekki dreift nógu jafnt yfir andlitið. Ég mæli því með að nota sólarvörn undir farða ef þú ætlar að vera í mikilli sól. Farði með sólarvörn getur verið nægjanlegur á vorin en ekki þegar sólin er sem sterkust yfir sumarmánuðina.“

Sólarvörn er krabbameinsvaldandi.

„Þetta hefur verið hvimleið mýta undanfarin ár og skapað hræðslu og vantrú hjá fólki. Það eru engar vísindalegar rannsóknir sem hafa sýnt fram á að innihaldsefnin í sólarvörnum séu krabbameinsvaldandi. Vísindalegar rannsóknir hafa aftur á móti sýnt fram á ótvíræð tengsl á milli sólarnotkunar og húðkrabbameina, þ.e.a.s. því meiri sólarnotkun því meiri áhætta á húðkrabbameini á lífsleiðinni.“

Sérstök sólarvörn fyrir andlitið er óþörf.

„Það er satt. Það er enginn munur á vörninni gegn sólinni á vanalegri sólarvörn ætlaðri fyrir allan líkamann og sólarvörn sem er ætluð fyrir andlitið einvörðungu. Vandamálið er að stundum eru þessar vanalegu sólarvarnir of feitar fyrir andlitið, sérstaklega fyrir þá sem eru með rósroða eða tilhneigingu til að fá bólur. Þá mæli ég sérstaklega með sólarvörnum án olíu fyrir andlitið með SPF 50.“

Gefur sólarvarnarkrem betri vörn en sprey?

„Það er að vissu leyti satt. Vörnin er í rauninni sú sama ef þær eru með sama SPF-þátt en það er hægt að „svindla“ meira með spreyið. Það er hætta á að það dreifist ójafnara yfir líkamann og því öruggara að nota kremin. Það er samt allt í lagi að nota spreyin ef þau henta betur, til dæmis fyrir þá sem hafa mikil líkamshár.“

Á að nota sólarvörn á lófana og iljar líka?

„Já, en margir sleppa því að smyrja sólarvörn á hendur og fætur. Því miður getur húðkrabbamein alveg komið upp þar líka. Húðkrabbamein er algengast í andlitinu eða á handarbökum, þar sem þetta eru þau svæði sem eru oftast berskjölduð fyrir sólinni. Ef þú ert berfættur í sólbaði þá áttu að sjálfsögðu að bera sólarvörn á fæturna.“

Ef sólarvörnin sem ég nota þolir vatn þarf ég þá ekki að bera á mig sólarvörn þegar ég kem upp úr sjónum eða sundlauginni?

„Það er ekki rétt. Varnir sem eru hannaðar sérstaklega til að þola vatn eru betri en varnir sem eru það ekki. En það á alltaf að smyrja sig aftur eftir að hafa verið í vatni og einnig ef maður hefur svitnað mikið.“

Sólarvarnir ætlaðar börnum eru mildari fyrir húðina.

„Það er satt. Það er munur á sólarvörnum sem eru sérstaklega hannaðar fyrir börn og venjulegum sólarvörnum. Þær eru oftast þykkari og stamari og eru lengur að fara inn í húðina. Það er út af öðruvísi samsetningu í kreminu þar sem innihaldsefnin fara ekki eins fljótt inn í húðina og í venjulegum sólarvörnum. Það á að nota sólarvarnir ætlaðar börnum alveg upp í táningsaldurinn.“

Húðin getur ekki framleitt D-vítamín ef þú notar sólarvörn.

„Það er satt en mikilvægt er að hafa í huga að þú þarft alls ekki langan tíma í sólinni til að fá nægjanlegt D-vítamín yfir daginn. Rannsóknir hafa sýnt að 15 mínútur á dag án sólarvarnar eru nægjanlegar fyrir D-vítamínframleiðslu. Nú í dag vitum við að sólin er ekki bara krabbameinsvaldandi heldur einnig ein af meginorsökum ótímabærrar öldrunar húðarinnar. Það er því mikilvægt að gæta hófs í nærveru sólarinnar til að viðhalda heilbrigði húðarinnar.“

Þegar kemur hins vegar að vali á sólarvörn er ýmislegt í boði og úrvalið mikið. Það er hins vegar eins með sólarvarnir eins og aðrar vörur, gæðin eru misjöfn eins og vörurnar eru margar. Því ber að vanda vel valið og tryggja að valin sé gæða sólarvörn sem er best til þess fallin að vernda húðina okkar fyrir skaðlegum áhrifum sólarinnar.

Icepharma selur tvær tegundir sólarvarna í hæsta gæðaflokki, Actinica SPF 50 og Neostrata Sheer Physical Protection SPF 50.

Sólarvörn sem virkar – staðfest með klínískum rannsóknum 

Actinica sólarvörn SPF 50

Actinica sólarvörn er fyrsta og eina sólarvörnin sem sýnt hefur verið fram á með klínískum rannsóknum að hafi fyrirbyggjandi áhrif gegn húðkrabbameini, öðru en sortuæxli (NMSC, Non-melanoma skin cancer) hjá ónæmisbældum sjúklingum. [1]

Húðlæknar ráðleggja því sínum skjólstæðingum að nota Actinica þegar stefnan er tekin á útiveru í sólinni. Actinica sólarvörn er bæði með UVA og UVB vörn, er rakagefandi og hefur SPF 50+ vörn. Þá er hún án allra ilmefna og PEG ýruefna og hentar því vel viðkvæmri húð. [1]

Þá ber líka að nefna einstakan skammtara sem hjálpar fólki að nota hæfilegt magn þegar sólarvörnin er borin á en samkvæmt Jennu notar einungis um fjórðungur fólks þykkt lag eins og á að gera, sem þýðir með öðrum orðum það að flestir smyrja alltof þunnu lagi af sólarvörn á sig.

Actinica sólarvörn fæst í öllum helstu apótekum og í vefverslun H Verslunar.

Njótum þess að vera úti í sólinni í sumar og pössum vel upp á húðina okkar og heilsuna.

Heimild:

[1] Ulrich C et al. Prevention of non-melanoma skin cancer in organ transplant patients by regular use of a sunscreen: a 24-months prospective, case-control study. Br J Dermatol 2009; 161:78-84.

Tilvísun: GAL200701

Nánari upplýsingar um vörurnar má finna hér:  https://vorutorg.icepharma.is/is/ithrottavorur/solarvorn/actinica-sun-lotion-80g

Sólarvörn sem verndar og styrkir rakavarnarlag húðarinnar

Neostrata Defend – Sheer Physical Protection SPF 50

Breiðvirk UVA/UVB sólarvörn sem hentar fyrir allar húðgerðir, einnig viðkvæma húð. Sólarvörnin inniheldur örlítin lit sem gefur jafnan, náttúrulegan húðlit og matta áferð. Sólarvörnin inniheldur einnig PHA ávaxtasýrur sem vernda og styrkja rakavarnarlag húðarinnar gegn umhverfisálagi og gefa henni heilbrigt útlit.

Hristið sólarvörnina í 15 sekúndur fyrir notkun. Berið á húðina að minnsta kosti 15 mínútum áður en farið er út í sól og berið reglulega á yfir daginn.

Nánari upplýsingar um vörurnar má finna hér:  https://vorutorg.icepharma.is/is/ithrottavorur/solarvorn/neostrata-targeted-sheer-physical-protection-spf-50

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við
Rannveig Hrönn Brink
rannveig@icepharma.is
sími 540 8059