Fara í efni
 

TILVALIÐ UPPHAF Í RETINÓLNOTKUN

20.07.2021
Tilkynningar

Húðvörulína NEOSTRATA hefur verið vinsæl um árabil og hefur verið einna fremst í flokki þegar kemur að því að hreinsa húðina og vinna á vandamálum tengt bólum og rósroða. Húðlæknar mæla hiklaust með NEOSTRATA.

NEOSTRATA húðvörur eru allar hannaðar og þróaðar af húðlæknum og klínískar rannsóknir á bakvið allar vörur. Húðvörurnar eru virkar og því þarf að velja vel hvaða vara hentar hverjum og einum. Húð hvers og eins er ólík og vandamálin misjöfn, hvort sem um er að ræða bólur, rósroða, litabletti, hrukkur, þurra, slappa og þreytta húð o.s.frv. þá geta allir fundið vöru við sitt hæfi í húðvörulínu NEOSTRATA.

Nýlega kynnti NEOSTRATA nýja vörulínu á markað. Correct vörulínan inniheldur öflug efni sem vinna gegn öldrun, svo sem retinóli, hýalúronsýru, peptíðum og alfa-hýdroxýsýru, sem vinna gegn fínum línum og hrukkum, bætir yfirbragð húðarinnar og jafnar húðlit. Correct vörulínan hentar öllum aldurshópum og er tilvalin til að fyrirbyggja öldrun húðarinnar og fullkomið fyrsta skref í notkun retinóls.

Retinól er afar áhrifaríkt og virkt innihaldsefni sem finnst í snyrtivörum í dag til að draga úr öldrunareinkennum og vernda húðina gegn þeim. A-vítamín er innihaldsefni sem getur dregið úr fínum línum, aukið þéttleika húðarinnar, örvað kollagen framleiðslu og verndað húðina gegn frekari skemmdum.

Það sem gerir Retinól að virkri vöru er að það nær að vinna mjög djúpt inn í húðina. Það vinnur sig frá dýpri lögum húðarinnar og upp. Retinól virkjar kollagen og elastín próteinin og fær þau til að framleiða prótein enn hraðar. Retinól hraðar einnig á endurnýjun húðfruma og verndar gegn skaðlegum þáttum sem geta haft slæm áhrif á húðina. Með reglulegri notkun verða fínni línur minna sjáanlegar, litarhaft húðarinnar verður jafnara og náttúrulegra, húðin verður þéttari og teygjanleiki eykst. Sum form af Retinól geta líka verið afar áhrifarík meðferð gegn bólum.

Retinól vörurnar í Correct vörulínunni eru með 0,03% styrkleika sem hentar vel fyrir byrjendur. Retinól er vara sem húðin þarf að venjast hægt og rólega og því gott að byrja á notkun 1x í viku og auka í daglega notkun eftir því sem húðin þolir.

Correct vörulínan inniheldur 6 vörur;

Comprehensive Retinol 0,3% Night Serum

  • Öflugt retinól nætur serum sem vinnur á sýnilegum hrukkum, daufleika húðar, grófri áferð, dökkum blettum og tapi á þéttleika húðar.
  • Inniheldur 0,3% hreint retinól ásamt NEOGLUCOSAMINE ® og hýalúrónsýru.

Comprehensive Retinol Eye Cream

  • Öflugt retinól nætur augnkrem sem vinnur á fínum línum, daufleika húðar og dökkum baugum á augnsvæðinu.
  • Hjálpar húðinni að endurnýja sig fyrir bjartara, stinnara og sléttara yfirbragð augnsvæðis.
  • Innheldur NEOGLUCOSAMINE ® 4 % og Dual Peptide blöndu.

Glycolic Microdermabrasion Polish

  • Eins skrefa maski sem sameinar efnafræðilega og eðlisfræðilega hreinsun til að lífga snögglega uppá húðina og gefur sléttara og geislandi yfirbragð.
  • Innheldur 10% Glycolic sýru.

Renewal Cream

  • Hefur að geyma einstaka samsetningu PHAsýra, Pró-vítamíns og A- og E- vítamíns.
  • Vinnur gegn ótímabærri öldrun, svo sem fínum línum, hrukkum, öldrunarblettum og ummerkjum sólar, þar á meðal þurrki.

Firming Collagen Booster

  • Serum sem varðveitir og hámarkar náttúrulegt kollagen húðarinnar og skilur eftir sléttari, þéttari og sterkari húð.
  • “Gardenia Cell Culture” hjálpar til við að varðveita núverandi kollagen með því að hindra ensímum sem brjóta niður kollagenið.

Antioxidant Defense Serum

  • Dregur úr ójöfnum hörundslit og gefur húðinni jafnara yfirbragð, góðan raka, næringu og dregur úr línum.
  • Hentar öllum húðgerðum og er olíulaust.
  • Inniheldur 8% blöndu af AHA/PHA sýrum (sítrónusýra, Gluconolactone og Maltobionic sýrur).
Nánari upplýsingar um vörurnar má finna hér:

https://vorutorg.icepharma.is/is/vefverslun/index/neostrata-1

Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við
Katrínu Björk Skaftadóttir - katrin@icepharma.is
Sími 540 8077
GSM 821  8077