Fara í efni
 

ESOMEPRAZOL KRKA MAGASÝRUÞOLIN HÖRÐ HYLKI 20 MG 14 STK

086997 Vörunr. framleiðanda: 086997
Framleiðandi: LYFIS-KRKA
Esomeprazol Krka hylki eru ætluð til notkunar hjá fullorðnum við:

Bakflæðisjúkdómi í vélinda (gastroesophageal reflux disease (GERD)
- Meðferð á sáramyndnandi bólgu vegna bakflæðis í vélinda.
- Langvarandi meðferð til að koma í veg fyrir að bólga í vélinda taki sig upp að nýju.
- Meðferð við einkennum bakflæðissjúkdóms í vélinda (GERD).

Í samsetningu með viðeigandi sýklalyfjum til upprætingar á Helicobacter pylori og
- Til að græða Helicobacter pylori tengt skeifugarnarsár.
- Til að koma í veg fyrir endurtekin magasár hjá sjúklingum með Helicobacter pylori tengd sár.

Sjúklingar sem þurfa samfellda meðferð með bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID):
- Til að græða magasár tengd meðferð með bólgueyðandi gigtarlyfjum.
- Til að koma í veg fyrir maga- og skeifugarnarsár tengd meðferð með bólgueyðandi gigtarlyfjum hjá sjúklingum í áhættuhópi.

Framhaldsmeðferð eftir innrennsli í æð, sem er ætlað að koma í veg fyrir endurteknar blæðingar úr magasárum.

Meðferð við Zollinger Ellison heilkenni.

Esomeprazol Krka hylki eru ætluð til notkunar hjá unglingum 12 ára og eldri við:

Bakflæðissjúkdómi í vélinda (gastroesophageal reflux disease [GERD])
- Meðferð á sármyndandi bólgu vegna bakflæðis í vélinda.
- Langvarandi meðferð til að koma í veg fyrir að bólga í vélinda taki sig upp að nýju.
- Meðferð á einkennum bakflæðissjúkdóms í vélinda (GERD).

Í samsettri meðferð með sýklalyfjum til upprætingar á skeifugarnarsári af völdum Helicobacter
pylori.

Leit að framleiðanda eða vöruheiti