Fara í efni
 

Ileo Mio 1 hluta High Output poki. Cvx Light 10-43 mm.

64C18675 Vörunr. framleiðanda: 18675
Framleiðandi: Coloplast
Eiginleikar:
Vöruheiti - Stóma SenSura Mio fyrir mikinn útskilnað
Gerð poka Tæmanlegur poki
Gerð plötu Convex Light
SenSura® Mio Convex 1-hluta High Output poki

SenSura Mio 1-hluta High Output stómapoki er með skálalaga (convex) stómaplötu sem tryggir stöðugleika í kringum inndregið stóma. Platan er teygjanleg og aðlagar sig að mismunandi líkamsgerð einstaklinga. Pokinn er hannaður fyrir mikinn útskilnað.

Vörulýsing
SenSura Mio Flex 1-hluta High Output er hannaður sérstaklega fyrir mjög mikinn útskilnað. Hönnun pokans tryggir auðvelda tæmingu og er lítt áberandi. Hentar einstaklingum þar sem mjög mikill útskilnaður er, eftir aðgerð og einstaklingum með garnastóma. SenSura® Mio Convex tryggir örugga aðlögun að líkama hvers einstaklings þrátt fyrir fellingar og dældir í húð og stómíum sem þarf að þrýsta fram.

Kostir:
Skilvirk og auðveld tæming úr poka gegnum stóran ventil.

Möguleiki er að tengja drenpoka við High Otuput poka til að draga úr líkum á að ventillinn stíflist/lokist til og að tryggja góðan nætursvefn.

Á SenSura Mio Convex High Output 1-hluta pokanum er hin teygjanlega plata föst á pokanum. Þegar skipt er um poka er því bæði skipt um poka og plötu. SenSura Mio Convex High Output poki fæst bæði í hlutlausum gráum lit og glærum poka með mælikvarða, til að fylgast með hversu mikið magn kemur í pokann.

Kostir:
Teygjanleg plata sem tryggir örugga festingu þrátt fyrir mismunandi líkamsbyggingu einstaklinga

Hlutlaust grátt efni sem er lítt áberandi

Einstakur hringlaga loftventill sem dregur úr loftmyndun í pokanum


Tvær mismunandi dýptir eru til, til að mæta mismunandi þörfum einstaklinga: Light og Mjúk

Convex Light veitir meðal stuðning í kringum stóma. Hentar vel þar sem op stómans er í hæð við húð og þar sem meðal og minni dældir eru í kringum stómað og þrýsta þarf stómanu fram.

Convex Mjúkur veitir mjúkan stuðning í kringum stómað. Hentar vel þar sem stómað nær rétt upp yfir yfirborð húðar og þar sem hrukkur og minni fellingar valda vandræðum.

Magn í pakka
10 stk.


Óskir þú eftir frekari upplýsingum um vöruna, þá hafðu samband við okkur á coloplast@icepharma.is eða í síma 520 4316 eða 520 4326.

Framleiðandi

Coloplast Danmark A/S markaðssetur og selur hjúkrunarvörur í Danmörku og á Íslandi fyrir stóma, þvagleka og urologiu svo og húðverjandi vörur og vörur til sárameðferðar.

Aðrar vörur frá Coloplast

Leit að framleiðanda eða vöruheiti